Sumarnámskeið fyrir börn
- Starfsfólk hjá Klifinu
- 2 hours ago
- 2 min read
Óhætt er að segja að skapandi sumarnámskeið Klifsins séu farin að skapa sér sess hjá krökkum í Garðabæ. Ninja Kristín Logadóttir sem stýrir sumarstarfinu í ár er ánægð með mikla eftirspurn eftir námskeiðum sumarsins
„Nær allir kennararnir hafa áður kennt á sumarnámskeiðum hjá okkur og við gætum ekki verið lánsamari með þennan framúrskarandi hóp af listafólki“.
Leikkonan, tónlistarkonan og framleiðandinn Helena Hafsteinsdóttir ætlar að vera aftur með okkur í sumar og kenna Leiklist og spuna þar sem farið verður yfir grunntækni í leiklist. Sigríður Halla Eiríksdóttir leikari og söngkona verður einnig með Skapandi sumarsöng sem er fyrir söngelska krakka sem vilja syngja sig í gegnum sumarið. Námskeiðið er hugsað eins og leikjanámskeið með áherslu á söng, leiklist, framkomu og sjálfan sköpunarkraftinn.
Fyrir börn sem elska að skapa með höndunum þá verða fjögur myndlistarnámskeið í boði. Sjöfn Asare rithöfundur og myndlistakona kennir námskeiðið Teikning og blönduð tækni og einnig hefðbundið myndlistarnámskeið þar sem krakkarnir fá tækifæri til að vinna með fjölbreyttan efnivið svo sem vatnsliti, blek, kol, krít og hluti sem þau finna í náttúrunni. Ísold Davíðsdóttir myndasöguhöfundur og kennari verður með vinsælt námskeið þar sem sköpun fer fram með hjálp Procreate í spjaldtölvu og farið verður yfir grunnatriðin í rafrænni list, en einnig verður hún með Myndasögugerð.
Að lokum bjóðum við upp á hið sívinsæla sumarnámskeið Klifsins, Skapandi sumarfjör. Skapandi sumarfjör er skemmtileg leikja- og listasmiðja fyrir 5-11 ára þar sem börn fá að leysa eigin sköpunarkraft úr læðingi á sviði vísinda, myndlistar, leiklistar, dans og tónlistar. Sumarstarfsmenn Klifsins Ninja Kristín Logadóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir, Elísabet Harðardóttir og Rannveig Edda Aspelund eru leiðbeinendur Skapandi sumarfjörs
“Mikil gleði og ánægja hefur fylgt sumarnámskeiðunum Klifsins, enda eru börnin hvött til að nýta ímyndunaraflið út í ystu æsar”
segir Ninja Kristín. Fyrir þá sem vilja nálgast frekari upplýsingar um námskeiðin bendi ég á www.klifid.is.

