top of page

Skapandi sumarsöngur

Sumarnámskeið fyrir 6-12 ára

myndlistarnamskeid.png

Sumarnámskeið fyrir 6-12 ára

Skapandi sumarsöngur er sumarnámskeið fyrir söngelska krakka sem vilja syngja sig í gegnum sumarið. Námskeiðið er hugsað eins og leikjanámskeið með áherslu á söng, leiklist, framkomu og sjálfan sköpunarkraftinn. Hver dagur hefur sitt þema en það eru tvær klukkutíma smiðjur hvern dag. Börnin munu meðal annars læra um grundvallarsöngtækni, stuðning, túlkun og vinna með lagatexta. Það verður einnig farið í leiklistarleiki sem stuðla að því að börnin brjótist út úr skelinni á sviði.

Reynt verður að vera úti eins mikið og veður leyfir, en meðfram smiðjutímunum verður farið í hópeflisleiki og sungið saman.


Námskeiðinu er skipt upp í hálftíma hópefli og samsöng þegar börnin mæta, svo er klukkutíma smiðjutími, svo er nesti og útivera og að lokum annar klukkutíma smiðjutími.


Mikilvægt er að klæða börn eftir veðri, þar sem farið er út alla dagana og hafa meðferðis léttan bita eða nesti.


29 júní - 3 júlí

6-9 ára

kl. 09:00 - 12:00

29 júní - 3 júlí

9-12 ára

kl. 13.00 - 16:00

Hádegisgæsla: Hægt er að skrá börn í hádegisgæslu milli kl. 12:00-13:00 á meðan námskeiðunum stendur. Passið að velja rétt tímabil, hægt er að finna hádegisgæsluna undir öll námskeið Klifsins. Tilvalið fyrir þau börn sem eru á námskeiðum bæði fyrir og eftir hádegi hjá Klifinu. 


Við biðjum þig vinsamlegast um að kynna þér  skilmála Klifsins​

30.900 kr.

Hvenær 

29. júní - 3. júlí

​Tími

kl. 9 - 12 eða 13 - 16

Hvar

Hofsstaðaskóli

Leiðbeinandi

Sigríður Halla Eiríksdóttir

Sigga lærði leiklist við Copenhagen International School of Performing Arts og hefur jafnframt stundað söngnám og kórnám við Domus Vox í Reykjavík. Hún hefur mikla ástríðu fyrir tónlist og leggur áherslu á að efla sjálfstraust í söng og tónlistarsköpun. Hún býr yfir reynslu af tónlistarsköpun með börnum meðal annars frá störfum sínum á leikskóla þar sem hún stýrði tónlistarstundum á deildinni.

bottom of page