
Sumarnámskeið fyrir 9 - 12 ára
Sumarnámskeið ætlað börnum sem elska að teikna og skapa. Á námskeiðinu lærum við helstu undirstöðuatriði í teikningu og hönnun persóna, sem nýtast til að búa til eigin myndverk á pappír. Lögð er áhersla á að móta bakgrunn fyrir viðfangsefni hvers þema, nemendur nýta ímyndunaraflið til að skapa heim, kanna hvaðan þemað kemur og hvernig þar . Persónur, karakterar og náttúran verður notuð sem innblástur, og nemendur fá tækifæri til að nota efnivið úr umhverfinu til að gera viðfangsefnið enn líflegra. Með þessu námskeiði læra börnin að efla sköpunargáfuna og túlka eigin hugmyndir á pappír.
30.900 kr.
Hvenær
29. júní - 3. júlí og 6. - 10. júlí
Tími
kl 9 - 12
Hvar
Hofsstaðaskóli
Leiðbeinandi
Sjöfn Asare
Sjöfn Asare lærði myndlist í San Francisco og leggur nú stund á doktorsnám í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands. Sjöfn myndlýsti barnabókinni Gling gló eftir Rebekku Sif Stefánsdóttur, útskriftarbókum fyrir Kvennaskólann og hefur tekið að sér sjálfstæð teikniverkefni. Sjöfn er einnig rithöfundur og hefur gefið út skáldsögur og ljóðabækur.

