
Sumarnámskeið fyrir 6-9 ára og 9-12 ára
Við munum fara yfir öll helstu grunnatriði í myndasögugerð. Þau munu byrja á að skapa persónu sem þau vinna svo áfram með. Þau munu skapa umgjörð fyrir persónuna og semja sögu um hana. Síðan munum við fara yfir mismunandi tækni til að myndlýsa sögunni í skemmtilegri myndasögu.
Að námskeiði loknu koma nemendur heim með sína eigin myndasögu. Einnig munu þau búa yfir færni til að halda sínum myndasögu ferli áfram heima fyrir.
15 - 19 júní (4 daga námskeið) Athugið ekki er kennt 17. júní | 9 - 12 ára | kl. 09:00 - 12:00 |
22 - 26 júní | 6 - 9 ára | kl. 13.00 - 16:00 |
Hádegisgæsla: Hægt er að skrá börn í hádegisgæslu milli kl. 12:00-13:00 á meðan námskeiðunum stendur. Passið að velja rétt tímabil, hægt er að finna hádegisgæsluna undir öll námskeið Klifsins. Tilvalið fyrir þau börn sem eru á námskeiðum bæði fyrir og eftir hádegi hjá Klifinu.
Við biðjum þig vinsamlegast um að kynna þér skilmála Klifsins
30.900 kr.
Hvenær
15. júní - 19 júní og 22. - 26. júní
Tími
kl. 9-12 eða 13 - 16
Hvar
Hofsstaðaskóli
Leiðbeinandi
Ísold Davíðsdóttir
Ísold Davíðsdóttir er uppeldis- og menntunarfræðingur auk þess að vera myndasöguhöfundur. Hún hefur gefið út þrjár myndasögur og bæði myndskreytt og skrifað barnabækur. Hún starfar sem kennari en þetta er annað sumarið sem hún stýrir námskeiðum í listsköpun með börnum.

