top of page

Leiklist og spuni

Sumarnámskeið fyrir 6-11 ára

myndlistarnamskeid.png

Sumarnámskeið fyrir 6-11 ára

Á námskeiðinu verður farið yfir grunntækni í leiklist og spuna. Í byrjun námskeiðsins munu allir nemendur fá úthlutaða senu sem mun fylgja þeim út vikuna. Þar munu nemendur fá að kynnast skemmtilegu ferðalagi senunnar frá upphafi til enda. Unnið verður með hlustun, samvinnu og persónusköpun.Unnið verður með sjálfstraust hvers nemanda í gegnum leiklist með áherslu á jákvæðni og opið hugarfar.​

Í lok námskeiðisins verður haldin sýning til að sýna afrekstur vikunnar / Eða sýningin tekin upp ef aðstæður krefjast.


Mikilvægt er að klæða börn eftir veðri, þar sem farið er alla dagana og hafa meðferðis léttan bita, nesti.


Við biðjum þig vinsamlegast um að kynna þér  skilmála Klifsins​

A - 15. júní - 19. júní ( ath 4 dagar ekki er kennt 17. júní​

6 - 9 ára

kl. 9 - 12

B - 15. júní - 19. júní

( ath 4 dagar ekki er kennt 17. júní​

 7 - 10 ára

kl. 13 - 16

C - 22. júní - 26. júní

8 - 11 ára

kl. 9 - 12

D - 22. júní - 26. júní

6 - 9 ára

kl. 13 - 16


Hádegisgæsla: Hægt er að skrá börn í hádegisgæslu milli kl. 12:00-13:00 á meðan námskeiðunum stendur. Passið að velja rétt tímabil, hægt er að finna hádegisgæsluna undir öll námskeið Klifsins. Tilvalið fyrir þau börn sem eru á námskeiðum bæði fyrir og eftir hádegi hjá Klifinu. 

25.900 kr.

Hvenær 

15.- 19. júní og 22. - 26. júní

​Tími

kl. 9-12 eða 13-16
(sjá nánar tímatöflu undir lýsiningu)

Hvar

Hofsstaðaskóli

Leiðbeinandi

Helena Hafsteinsdóttir

Helena Hafsteinsdóttir er leikkona, tónlistarkona og framleiðandi. Hún lærði leiklist við The American Academy of Dramatic Arts. Leiklistarkennaraferill hennar hófst hjá Leynileikhúsinu en þar kennir hún börnum á aldirnum 6-12 ára. Hún hefur mikla ástríðu fyrir listsköpun og leggur áherslu á að auka sjálfstaust barna í gegnum leiklistina.

bottom of page