
Sumarnámskeið fyrir 6-11 ára
Hið sívinsæla sumarnámskeið Klifsins Skapandi sumarfjör, verður í boði fyrir börn á aldrinum 6 til 9 ára og 9-12 ára sumarið 2026. Skapandi sumarfjör er skemmtileg leikja- og listasmiðja þar sem börn fá að leysa eigin sköpunarkraft úr læðingi á sviði vísinda, myndlistar, leiklistar, dans og tónlistar. Hver dagur hefur sitt þema og reynt verður að vera úti eins mikið og veður leyfir. Leikir og hópefli verða ríkjandi og mun námskeiðið einkennast af mikilli sköpunar- og leikgleði.
A - Skapandi sumarfjör | 6-9 ára | 15. júní | 19. júní | Eftir hádegi |
C - Skapandi sumarfjör | 6-9 ára | 29. júní | 3. júlí | Eftir hádegi |
D - Skapandi sumarfjör | 5-8 ára | 6.júlí | 10. júlí | Fyrir hádegi |
E - Skapandi sumarfjör | 8-11 ára | 6. júlí | 10. júlí | Eftir hádegi |
F - Skapandi sumarfjör | 8-11 ára | 13. júlí | 17. júlí | Fyrir hádegi |
G - Skapandi sumarfjör | 5-8 ára | 13. júlí | 17. júlí | Eftir hádegi |
Hádegisgæsla: Hægt er að skrá börn í hádegisgæslu milli kl. 12:00-13:00 á meðan námskeiðunum stendur. Passið að velja rétt tímabil, hægt er að finna hádegisgæsluna undir öll námskeið Klifsins. Tilvalið fyrir þau börn sem eru á námskeiðum bæði fyrir og eftir hádegi hjá Klifinu.
Mikilvægt er að klæða börn eftir veðri, þar sem farið er út alla dagana og hafa meðferðis léttan bita, nesti.
Við hvetjum foreldra og forráðamenn til að ná í Abler appið en öll samskipti og upplýsingar varðandi námskeiðið munu fara þar fram.
19.900 kr.
Hvenær
Júní og júlí
Tími
kl. 9-12 eða 13 - 16
Hvar
Hofsstaðaskóli
Leiðbeinandi
Sumarstarfsmenn Klifsins

