top of page
klifid_merki_stigi.png

Trommunámskeið · Einkatímar

8 ára og eldri

myndlistarnamskeid.png

8 ára og eldri

Aðaláhersla er lögð á að námið sé fjölbreytt og skemmtilegt og að áhugasviði hvers nemanda verði sinnt af gaumgæfni ásamt því að veita nemendum á byrjunarstigi grunnþjálfun í trommuleik. Tekið verður mið af getu og reynslu hvers og eins. Kennt er á trommusett og þarf nemandi aðeins að koma með eigin trommukjuða.

Undirstöðuatriði eins og handsetning og beiting við trommusett verða kennd í upphafi námskeiðs og farið verður lítilega í lestraræfingar, eða eins mikið og nemandi/foreldrar óskar eftir.

Sérsniðið námskeið að þörfum hvers og eins einstaklings. Tímasetningar: Einkatímar 30 mínútur í senn í 10 vikur.

81.700 kr

Hvenær 

Samkomulag

​Tími

Samkomulag

Hvar

Sjálandsskóli

Leiðbeinandi

Árni Áskelsson

Trommukennari

Árni Áskelsson hóf trommuferilinn 16 ára í Eiðaskóla. Síðan lá leiðin í Tónlistarskólann í Kópavogi þar sem hann lagði stund á nám í söng og píanóslætti. Fljótlega beindist þó áhuginn að trommum og slagverki og fór hann í slagverksnám í tónlistarskólanum í Reykjavík og síðan í jassdeild F.Í.H. Jafnframt hóf hann starf í Sinfóníuhljómsveit íslands þar aðal starfsvettfangurinn var síðan.
Hann fór ungur að kenna og kenndi ávallt með starfinu í Sinfó ásamt að leika í ýmsum danshljómsveitum.

bottom of page