top of page
klifid_merki_stigi.png

Söngur einkatímar · Complete Vocal Technique

Fyrir 13 ára og eldri · Fullorðnir

myndlistarnamskeid.png

Fyrir 13 ára og eldri · Fullorðnir

Einkatímar í söng þar sem notast er við söngtæknina Complete Vocal Technique. Tímarnir eru sniðnir að hverjum og einum nemanda sem fær að ráða ferðinni eftir því hver óskin er í hvert sinn. Söngvarinn kemur í tíma með lag sem hann vill vinna með, en ásamt því verður farið í grunntækni eins og stuðning, raddbeitingu og framkomu. Tímarnir henta bæði byrjendum og þeim sem eru lengra komnir.

Hægt er að velja á milli 1-5-10 tíma og lækkar verðið per tíma eftir hvað margir tímar eru keyptir.


1x 45 mín- 13.000 kr.

5x 45 mín- 62.500 kr.

10x 45 mín – 120.000 kr.


Endilega sendið tölvupóst á klifid@klifid.is ef spurningar vakna. Hægt er að nýta frístundastyrkinn fyrir 10x skipti.

13.000 kr.

Hvenær 

Samkomulag

​Tími

Samkomulag

Hvar

Garðatorg 7

Leiðbeinandi

Rebekka Sif Stefánsdóttir

Söngkennari

Rebekka Sif Stefánsdóttir er söngkona, lagahöfundur og söngkennari. Hún hefur kennt börnum hjá Klifinu söng og lagasmíðar frá haustinu 2013 með góðum árangri. Rebekka er með kennaragráðu frá Complete Vocal Institute í Kaupmannahöfn. Áður hefur hún lokið burtfaraprófi í bæði klassískum söng frá Tónlistarskólanum í Garðabæ og jazz- og rokksöng frá Tónlistarskóla FÍH. Haustið 2017 gaf hún út sína fyrstu plötu Wondering sem inniheldur 11 frumsamin lög. Hún hefur einnig verið verkefnastjóri Skapandi sumarnámskeiða Klifsins sem eru vinsæl listaleikjanámskeið meðal barna í Garðabæ yfir sumartímann.

Rebekka Sif er einnig rithöfundur og bókmenntafræðingur en hún lauk B.A. prófi í almennri bókmenntafræði árið 2017 og M.A. gráðu í ritlist árið 2020. Hún hefur gefið út skáldsögurnar Flot (2022) og Trúnaður (2022), barnabókina Gling Gló (2022) ásamt ljóðabókinni Jarðvegur (2020).

bottom of page