
8 ára og eldri
Byrjendur:
Farið verður í helstu grip, laglínur, þekkt lög og gítarstef. Unnið út frá áhugasviði og getu hvers og eins nemanda og miðað að því að gera námið sem skemmtilegast.
Lengra komnir:
Unnið út frá getustigi og áhugasviði hvers og eins nemanda. Farið í hljóma, tónstiga, laglínur, spila eftir eyra og unnið með spuna.
Kennt er eftir ýmsum blöðum og verkefnum, bæði tab og bókstafshljómar. Einnig er í boði kennsla eftir nótum og hægt verður að fara í grunnatriði tón- og hljómfræði með náminu. Snjalltækni er nýtt til að auðvelda nemendum heimavinnuna. Notaðar eru fljölbreyttar kennsluaðferðir þar sem skilningarvitin eru virkjuð á fjölbreyttan hátt.
30 mínútur í senn í 10 skipti
Ath. Þátttakendur koma með eigið hljóðfæri í gítartímana. Tímasetningar: Einkatímar 30 mínútur í senn í 10 vikur. Kennarar: Heiðar Ingi Árnason og Aron Andri Magnússon
81.700 kr
Hvenær
Samkomulag
Tími
Samkomulag
Hvar
Sjálandsskóli
Leiðbeinandi
Heiðar Ingi Árnason
Á yngri árum var Heiðar Ingi í námi í klassískum gítarleik og kláraði grunnpróf. Hann hóf hann nám við Tónlistarskóla FÍH og tók grunnpróf í rafgítarleik. Heiðar hefur lokið grunnnámskeið í söng hjá Söngsteypunni í Complete Vocal Technique.
Heiðar Ingi vann lengi sem leiðbeinandi á leikskóla auk þess sem hann sinnti sérkennslu þar. Árið 2022 hóf svo Heiðar Ingi kennslu í Tónholti í Norðlingaskóla hjá Þránni Árna Baldvinssyni úr Skálmöld. Hann kennir einnig í Tónlistarskóla Árbæjar.

