
AQUA ZUMBA 1-3x í viku
Aqua Zumba® er sundlaugarpartý sem gefur hressilegri líkamsþjálfum nýja merkingu. Í Aqua Zumba sameinast hugmyndafræði Zumba og hefðbundin vatnsleikfimi í öruggri en krefjandi líkamsrækt í vatni, þar sem reynir á þol og hefur auk þess líkamsmótandi áhrif. Aqua Zumba er síðast en ekki síst ótrúlega hressandi og skemmtileg hreyfing þar sem tónlistin er í forgrunni.
Tímar á fimmtudögum verða blandaðir Aqua zumba og aqua tabata tímar.
Námskeiðin hefjast 24. ágúst og eru í 8 vikur, hver tími er 50 mín.
Tímar
mánudaga og miðvikudaga klukkan 17:15
Þriðjudaga og fimmtudaga klukkan 19:30
Laugardaga klukkan 10:00
Verð:
1x í viku kr. 17.950
2x í viku kr. 32.450
3x í viku kr. 43.400
17.950 kr
Hvenær
Tími
Hvar
Leiðbeinandi
Kristbjörg Ágústsdóttir
Hreyfing í vatni
Kristbjörg hefur kennt hjá okkur í Klifinu við góðan orðstír frá 2012 þegar hún tók réttindi sem Zumba leiðbeinandi. Kristbjörg hefur lagt mikla áherslu á hreyfingu í vatni og sérhæft sig í því. Aqua Zumba námskeiðin hennar hafa verið mjög vinsæl hjá Klifinu en hún hefur einnig kennt Aqua tabata, HAF yoga/ jóga í vatni, Aqua yogalates, Zumba fitness og Zumba kids.
Kristbjörg er auk zumba réttinda með kennsluréttindi í hóptímakennslu, Fusion pilates, Yoga tune up, HAF yoga (Holistic aquatic flow) og Pilates nám hjá Kinected, Kane School NYC.

