
AQUA YOGALATES 1x í viku
Aqua Yogalates eru mjúkir og rólegir tímar þar sem búið er að blanda saman jóga æfingum í vatni (HAF yoga) og pilates æfingum sem aðlagaðar hafa verið vatni. Hreyfing í vatni slakar náttúrulega á vöðvum, viðheldur hreyfigetu liða, þjálfar djúpvöðva og losar streitu. Úr HAF yoga tökum við teygjur, flæði og núvitund og úr Aqua Pilates tökum við styrktar- og stöðuleikaæfingar þar sem áhersla er lögð á virkni djúpvöðva. Æfingar eru bæði unnar með og án stuðningstækja og boðið er upp á flot í lok tímans.
Námskeiðin hefjast þriðjudaginn 25. ágúst og eru í 8 vikur, hver tími er 50 mín.
Kennt er:
Þriðjudaga kl: 20
Verð:
1x í viku 20.400 kr
20.400 kr
Hvenær
Þriðjudaga
Tími
kl 20:30
Hvar
Sjálandsskóli
Leiðbeinandi
Kristbjörg Ágústsdóttir
Hreyfing í vatni
Kristbjörg hefur kennt hjá okkur í Klifinu við góðan orðstír frá 2012 þegar hún tók réttindi sem Zumba leiðbeinandi. Kristbjörg hefur lagt mikla áherslu á hreyfingu í vatni og sérhæft sig í því. Aqua Zumba námskeiðin hennar hafa verið mjög vinsæl hjá Klifinu en hún hefur einnig kennt Aqua tabata, HAF yoga/ jóga í vatni, Aqua yogalates, Zumba fitness og Zumba kids.
Kristbjörg er auk zumba réttinda með kennsluréttindi í hóptímakennslu, Fusion pilates, Yoga tune up, HAF yoga (Holistic aquatic flow) og Pilates nám hjá Kinected, Kane School NYC.

