top of page
klifid_merki_stigi.png

Aqua Tabata

Aqua Tabata 1x í viku

myndlistarnamskeid.png

Aqua Tabata 1x í viku

Aqua Tabata er kröftug og skemmtileg líkamsrækt í vatni sem byggir á HIIT-kerfi (High Intensity Interval Training). Æfingar eru framkvæmdar í stuttum, markvissum lotum með hléum á milli og endurteknar nokkrum sinnum til að hámarka árangur. Bæði er unnið ði með og án mótstöðuáhalda, svo sem vatnsnúðla.

Vatnsæfingar eru bæði krefjandi og áhrifaríkar. Náttúruleg mótstaða vatnsins eykur þol, virkjar fleiri vöðvahópa í hverri hreyfingu og hjálpar til við að skapa jafnvægi í líkamanum. Álag á liði er minna í vatni, og þar sem þyngdarkrafturinn hefur ekki sömu áhrif geta margir framkvæmt æfingar sem annars væru erfiðar á landi. Skemmtileg og orkumikil tónlist heldur tempóinu uppi og gerir tímana enn ánægjulegri. Aqua tabata hentar því þeim sem vill bæta styrk, þol og hreyfifærni á kröftugan, öruggan og skemmtilegan hátt. Námskeiðið hefst laugardaginn 29. ágúst og eru í 8 vikur, hver tími er 50 mín.

  • Kennt er:

    • Laugardaga klukkan 11:00

  • Verð:

    • 1x í viku 17.950 kr

ATH. aðeins 5 pláss laus

17.950 kr

Hvenær 

Laugardaga

​Tími

kl 11:00

Hvar

Sjálandsskóli

Leiðbeinandi

Kristbjörg Ágústsdóttir

Hreyfing í vatni

Kristbjörg hefur kennt hjá okkur í Klifinu við góðan orðstír frá 2012 þegar hún tók réttindi sem Zumba leiðbeinandi. Kristbjörg hefur lagt mikla áherslu á hreyfingu í vatni og sérhæft sig í því. Aqua Zumba námskeiðin hennar hafa verið mjög vinsæl hjá Klifinu en hún hefur einnig kennt Aqua tabata, HAF yoga/ jóga í vatni, Aqua yogalates, Zumba fitness og Zumba kids.

Kristbjörg er auk zumba réttinda með kennsluréttindi í hóptímakennslu, Fusion pilates, Yoga tune up, HAF yoga (Holistic aquatic flow) og Pilates nám hjá Kinected, Kane School NYC.


bottom of page