top of page
klifid_merki_stigi.png

Aqua Fit

AQUA FIT 2x í viku

myndlistarnamskeid.png

AQUA FIT 2x í viku

Aqua fit er vatnsleikfimi þar sem tónlistin setur stemninguna og hvetur þátttakendur áfram í kröftugum og fjölbreyttum æfingum. Í tímum er unnið með mismunandi form hreyfingar í vatni, til dæmis tabata, og æfingarnar eru framkvæmdar bæði með og án mótstöðuáhalda, svo sem vatnsnúðla.

Líkamsrækt í vatni er bæði frábær og krefjandi. Vatnið veitir náttúrulega mótstöðu sem eykur þol og hjálpar til við að virkja fleiri vöðvahópa í hverri æfingu en sambærilegar æfingar á landi. Álag á liði er einnig minna í vatni, og þar sem þyngdarkrafturinn hefur ekki sömu áhrif geta margir framkvæmt æfingar í vatni sem þeir gætu annars átt erfitt með. Aqua Fit hentar því vel fyrir breiðan hóp fólks sem vill bæta styrk, þol og hreyfifærni á kröftugan, öruggan og skemmtilegan hátt.

Námskeiðið hefst 1. september og er í 8 vikur, hver tími er 50 mín.

Kennt er:

  • Þriðjudaga og fimmtudaga klukkan 17

Verð:

  • 2x í viku 32.450 kr

32.450 kr

Hvenær 

Þriðjudaga og fimmtudaga

​Tími

kl 17:00

Hvar

Urriðaholtsskóli

Leiðbeinandi

Kristbjörg Ágústsdóttir

Hreyfing í vatni

Kristbjörg hefur kennt hjá okkur í Klifinu við góðan orðstír frá 2012 þegar hún tók réttindi sem Zumba leiðbeinandi. Kristbjörg hefur lagt mikla áherslu á hreyfingu í vatni og sérhæft sig í því. Aqua Zumba námskeiðin hennar hafa verið mjög vinsæl hjá Klifinu en hún hefur einnig kennt Aqua tabata, HAF yoga/ jóga í vatni, Aqua yogalates, Zumba fitness og Zumba kids.

Kristbjörg er auk zumba réttinda með kennsluréttindi í hóptímakennslu, Fusion pilates, Yoga tune up, HAF yoga (Holistic aquatic flow) og Pilates nám hjá Kinected, Kane School NYC.


bottom of page